Handritahirslan
Hirsluvefur Árnastofnunar geymir margt áhugavert. Hér má til dæmis kynnast miðlunarverkefninu Handritin til barnanna sem nú stendur yfir. Á vefnum má líka fletta nokkrum af þeim merku handritum sem stofnunin varðveitir eða skoða myndir af einstökum síðum úr handritum. Þeir sem vilja þjálfa sig í handritalestri geta opnað ítarlega sýnisbók íslenskrar skriftar í aldanna rás. Þá eru hér myndir af þúsundum skjalauppskrifta, svokölluðum apógröfum. Í Hirslunni eru líka vefsíður alþjóðlegra rannsóknarhópa um forn íslensk lagahandrit og handritagerð í Helgafellsklaustri á 14. öld.